26.3.2007 | 00:39
Flottur hópur.
Sæl verið þið öll saman ég er sammála ykkur um að það að það geti ekki verið svona langt síðan við yfirgáfum grunnskólann. Manni finnst ekki vera svo langt síðan við hittumst öll í fyrsta sinn þrettán ára gömul. þessi tími í grunnskolanum á Djúpavogi var mjög skemmtilegur og margar góðar minningar koma upp í kollinn þegar maður hugsar til baka. Ég bý í Garðabæ og er giftur henni Laufeyju við eigum saman eina stelpu sem verður sjö ára í haust en Laufey á ein strák sem er 13 ára og ég á eina stelpu á Hornafirði hún er líka 13 ára sem sagt þrjú börn. Ég er húsasmiður og vinn hjá ÍAV þar starfa ég sem flokkstjóri smiða. Síðustu tvö ár hef ég verið á kvöldin og um helgar í Háskóla Reykjavíkur að læra byggingariðnfræði og stefni á að klára það í næsta vor.
Þetta er frábært framtak að opna þessa síðu, ég ætla að fara að skanna inn gömlu myndirnar og setja þær hérna inn. Ég er spenntur fyrir því við hittumst öll aftur og vonandi sem fyrst.
Kær kveðja Gunnar Smári.
Um bloggið
1972
Síður
Bloggvinir
Tónlistarspilari
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.