27.6.2007 | 13:13
Hver man ekki eftir Hansa
http://www.ok.is/vefmynd/FRETTABR0300.pdf
Á blaðsíðu 4 Alltaf gaman að rekast á gamlan vin
Sæl verið þið KRAKKAR.
Hvað er að frétta eru allir farnir í sumarfrí ?
Ég spyr nú bara vegna þess að það skrifar engin inn á síðuna kannski er það bara vegna áhugaleysi eða hefur fólk ekkert að segja ? Ég er nú bara þannig að mig langar að vita hvort það er áhugi fyrir að hittast í sumar ? það þarf ekki að taka langan tíma að rífa í spaðann á fólki og segja hæ eða smella kossi á kinn og hugsa um af hverju fékk ég ekki að kyssa þennan vanga fyrir 20 árum síðan.
það er ekkert mál að hittast í húsdýragarðinum einn laugardag eða sunnudag. Einnig er ekkert mál að finna annan stað til að hittast á.
Ég þarf bara smá undirbúning (fara í megrun reyna að stækka fá mér hárkollu og leigja flottan bíl). En án gríns þá getur ekki verið að við KRAKKARNIR höfum breyst það mikið að við getum ekki komið saman og spjallað smá.
Ingólfur var t.d að koma frá USA og hann hefur ekkert breyst (ekkert yfirvaraskegg og engin bjórvömb) hann var samt með kúrekahatt en það er bara kúl.
Ég bý í Hafnafirði og það er alltaf opið hús hjá mér fyrir ykkur ef þið hafið áhuga á að líta inn.
Kveðja úr Sódómu Gísli Sig (sonursiggabaddafrávegamótumviðklifið)
Um bloggið
1972
Síður
Bloggvinir
Tónlistarspilari
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ætli að Hansi sé hættur að nota stóla á viðfangsefni sín í vinnunni?????
Eiður Ragnarsson, 3.7.2007 kl. 21:51
Örugglega ekki, það var nú alltaf hægt að stóla á Hansa að klikka ekki á smáatriðunum!!!
1972, 5.7.2007 kl. 21:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.