ALLIR AÐ STAÐFESTA KOMU

Þann 24 november því við þurfum að fá fjölda, vinsamlegast skrifa athugasemd við þessa færslu.
Helst sem allra fyrst, og taka fram hvort maki kemur með eða ekki! Endilega elskurnar mínar komiði nú sem
flest því það væri svo gaman að sjá allllllla.

Og enn og aftur: KOMA SVO!!!!


Hittingur 24 nóvember :-)

Er það þá ekki bara ákveðið?  mér sýnist þessi dagsetning leggjast vel í flesta.  Er þá ekki næsta skref að finna stað til að hittast á, ég er lítið inn í svoleiðis málum þarna í Reykjavíkinni, býst ekki við að KFC væri að gera sigWhistling  en veitingastaður með litlum sal þar sem við gætum verið út af fyrir okkur væri flott.   Kveðja úr sveitinni  Svala

Samkoma

það er ekkert mál að redda sal fyrir hópinn ef ákveðið verður að hittast 24.nóv

 Kv Gísli


24 nóv flott

Sæl verið þið ég er samála Gísla um að ég  er alltaf að kíkja og gá hvort eitthvað sé að gerast á síðunni og það er sem betur fer alltaf einhver hreyfing þó að það séu næstum alltaf sömu aðilarnir sem sína sóma sinn í að skrifa .

En það sem ég er að spá í er að  mér fyndist 24 nóvember hljóma vel til þess  að hittast við gætum reynt að finna einhvern stað sem er ekki of stór t.d. A Hansen í Hafnafirði eða einhvern annan stað sem er  í þessum stærðarflokki.  Ef einhver hefur á huga á að skoða þetta þá er ég til í að vera með í að undirbúa þetta bara að hafa samband.

k.v. Gunnar Smári   

 


Draugar eða ????

Hello it's me again

Ég er svo ógeðslega forvitin að mér þætti vænt um að þeir sem eru að koma hér inn á síðuna kvitti, verð bara að vita hver þið eruð.

Eins og fólk hefur kannski tekið eftir að þá er þetta að verða eins og einkabloggsíða hjá mér og til lengdar verður það ekki skemmtilegt, ætla mér að fara setja hér inn eitthvað ógeðslega leiðinlegt. T.d var að vinna frá 8-16, setti í þvottavél, kveikti á uppþvottavélinni, fór til Huldu, kom heim settist við tölvuna til að segja ykkur frá því hvernig dagurinn gekk fyrir sig fram að þessu. Ah gleymdi aðalatriðinu plokkaði og litaði augabrúnirnar og vá.

Ætti kannski að taka mynd af mér og setja hérna inn, þá getið þið heilsað mér ef þið sjáið mig á förnum vegi, þekkið mig kannski ekki með nýju augabrúnirnar.

Svo til ykkar sem ekkert hefur frést af endilega látið vita hvar þið eruð niðurkomin. Veit ekki til þess að neinn af hópnum sé látin, les reglulega dánartilkynningar og minningargreinar. Líka þið sem eruð búin að láta vita af ykkur, gott að kynnast aftur í rólegheitum í gegnum tæknina.

Kveð ykkur að sinni

Helena forvitna og óþolinmóða


Auglýsing, Sviðamessa

Svona fyrir þá sem vita ekki hvað Sviðamessa er þá skelli ég inn link á auglýsingu fyrir hana.  Það sakar ekki að reyna að ná ykkur hingað í menningunaWink

http://www.djupivogur.is/data/svidamessax%20(Large).jpg


Til í allt....eða næstum allt

Hæ hæ

Mikið er gaman að það skuli vera komið smá líf á síðuna. Ég samþykki held ég allt bara til að fá að hitta ykkur og mest til að sjá ykkur. Mér finnst fínt að hittast á einhverjum stað í Rvk. Svo væri líka gaman að hittast á Djúpavogi.

Þar til næst og koma svo.........HelenaWink


Sviðamessa

Svo væri nú gaman að sjá einhverja á Sviðamessu sem verður haldin 10 november og er víst skemmtun sem engin má missa afSmile  Ég missti af henni síðast en ætla ekki að láta það henda aftur þó ég borði ekki svið en það er víst boðið uppá fleira þjóðlegt eins og pizzurJoyful


Líf að færast á bloggið:-)

Ég mátti nú til með að skrifa eitthvað hérna svo sveitapíurnar fari nú ekki að yfirtaka þettaCool   En mikið er ég nú sammála þeim að það verði að fara að gera eitthvað og mér líst vel á að hittast á veitingastað í Rvk og jafnvel hægt að gera eitthvað meira eins og að hittast með börnin fyrri part dagsins.  ég ætla að leggja til tvær dagssetningar sem eru nottla dagar sem henta mer en endilega að komenta á þetta og þá koma með aðrar tillögur, þetta er þá 13 oktober eða 24 november hvernig líst ykkur á það?  Kveðja Svala

Á lífi!

Hæ öll!

Ég er sammála Helenu, vinkonu vors og blóma...... mér þætti fúlt að missa af því að hitta ykkur! Er ekki einaldast að hittast í Reykjavík og vona að einhverjir geti mætt? Það má líta á það sem fyrsta hitting af mörgum væntanlegum í framtíðinni!! Wink  Þyrfti að vera á veitingastað þar sem við gætum verið í litlum sal út af fyrir okkur.    Hvað segið þið???

Kveðja, Heiðlóa.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

1972

Höfundur

1972
1972
Árgangur 1972 Djúpavogsskóla

Færsluflokkar

Síður

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG 3346
  • IMG 3370
  • IMG 3369
  • IMG 3368
  • IMG 3364

Tónlistarspilari

- F:\MP3\80's\Modern Talking - Brother Louie

Spurt er

Eigum við að hittast á Djúpavogi í sumar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband